| Höfundur: | Anna |
| Póstfang: | ekki skráð |
| Dagsetning: | 15.2.2007, kl. 9:39:40 |
| Fyrirsögn: | Re: gjafir |
| Korkur: | Og já, ég heyrði eitt í útvarpinu í gær sem gerði mig alveg kjaftstopp, það var það að við ættum að halda upp á Valentínusardaginn af því að það væru ekki sem "gætu" notað bónda- og konudag því það væru ekki allir skotnir í gagnstæðu kyni! Þessum sem talaði datt augljóslega ekki í hug að tveir karlmenn geta alveg haldið upp á bóndadaginn, nei, það er bara dagur fyrir gagnkynhneigða. Ég veit ekki hvort hann hefur áttað sig á því hvað þetta hljómaði ótrúlega fordómafullt en það gerði það nú samt... |
| Höfundur: | valentínus |
| Póstfang: | ekki skráð |
| Dagsetning: | 12.2.2007, kl. 13:15:04 |
| Fyrirsögn: | gjafir |
| Korkur: | einhverjr góðar hugmyndir af gjöf á valentínusardaginn |
| Höfundur: | Setta |
| Póstfang: | ekki skráð |
| Dagsetning: | 13.2.2007, kl. 10:19:19 |
| Fyrirsögn: | Re: gjafir |
| Korkur: | Mikið knús, kossar og hrós. Það eru bestu gjafirnar |
| Höfundur: | Lilla |
| Póstfang: | ekki skráð |
| Dagsetning: | 13.2.2007, kl. 14:43:58 |
| Fyrirsögn: | Re: gjafir |
| Korkur: | Finnst engum Valentínuardagurinn vera innflutt klisja sem við komust vel af án? Svona án þess að ætla að vera of neikvæð ;) |
| Höfundur: | Anna |
| Póstfang: | ekki skráð |
| Dagsetning: | 15.2.2007, kl. 9:34:21 |
| Fyrirsögn: | Re: gjafir |
| Korkur: | Jú, mér finnst Valentínusardeginum ofaukið í íslenskri sparidagaflóru, hann er alltof nálægt bónda- og konudegi, er t.d. á miðvikudegi núna og svo er konudagurinn á sunnudaginn. Ég og kærastinn gerðum bara ekkert merkilegt í gær en við gerðum okkur dagamun á bóndadag og ætlum að gera það aftur á konudag. |
