Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Flugeldar og tívolíbombur

flugeldar litilFlugeldasala byrjar formlega 28. desember og úrvalið er og verður stærra með hverju árinu. Þess vegna finnst okkur við hæfi að rita niður og safna saman stærri söluaðilum á höfuðborgarsvæðinu og birta hér á vefnum. Veðurspáin er hagstæð fyrir gamlárskvöld og því má búast við mikilli og góðri flugeldasýningu um 12 leytið þann 31.desember.

Best í bænum - Jólahlaðborð

perlan litilOkkur þykir það við hæfi að kynna úrslit úr kosningu um besta jólahlaðborðið nú þegar aðfangadagur fjarlægist í stað þess að nálgast. Vel á þriðja hundrað notendur Gulu línunnar tóku þátt í könnuninni að þessu sinni og er það með betra móti. Best í bænum á eftir að vaxa og dafna vel að okkar mati og með tíð og tíma verður þessi kosning ágætis leiðarvísir á vöru og þjónustu þar sem möguleiki gefst á að kynnast nýjungum og hrósa því sem það á skilið.

Kæri eiginmaður,

badrosir bigGetur þú í sannleika sagt að þú dekrir konuna þína oft? Þá er ég ekki að tala um að hún megi stjana við þig á meðan formúlan eða boltinn er og færa þér bjór og nasl. Eða fara í bíó með þér og börnunum. Sitja á flottum veitingastað yfir 3 rétta máltið með góðu víni og hlusta á þig tala við allan heiminn í gsm símanum. Ekki.!!...

Hinar jólagjafirnar

louandylittlebritainFlestir lenda í því svona rétt fyrir jól að trúa ekki þeirri staðreynd að enn ein jólin séu þeir langt á eftir áætlun með það að finna eitthvað til þess að pakka utan um handa ástvinum. Hérna eru nokkrar hugmyndir.

Skýrar línur frá Danmörku

Aseta dlineKnud Holscher er kannski nafn sem fæstir Íslendingar þekkja, en hann er samt sem áður einhver skærasta stjarna Norðurlandanna á sviði hönnunar. Holscher hefur starfað út um allan heim frá því á sjötta áratugnum og er margverðlaunaður arkítekt og innanhússhönnuður.

Jólapaté Pottagaldra

Pottagaldrar logoÍ mörg undanfarin ár hafa Pottagaldrar búið til ákaflega ljúfengt paté og gefið sem jólagjafir. Þiggjendum þykir nú þetta paté orðið ómissandi á jólaborðið. Uppskriftin er ákaflega einföld og þægileg í framkvæmd.

Tösku- og hanskabúðin

toskur og hanskar litilFlestir kannast við Tösku- og  hanskabúðina sem staðsett er við Skólavörðustíg 7. Verslunin sem hefur verið þar í rúm 40 ár er orðin eitt af kennileytum Skólavörðustígsins og löngum þekkt fyrir mikið úrval af gæðatöskum og hönskum af ýmsum gerðum.

Reykjavík - Akureyri - Blönduós - Ólafsvík

Nesfrakt litilNesfrakt hóf starfsemi sína árið 2000 með flutningum á milli Reykjavíkur og Snæfellsness en fljótlega bættist við Skagaströnd og loks Eyjafjarðarsvæðið. Á þessum tíma vantaði bætta þjónustu í fiskflutningum á milli þessara svæða en fyrr á þessu ári hóf Nesfrakt almenna flutninga, allt frá litlum jólapökkum upp í heilu sumarhúsin.

Forn-Ný Járngallerí

Fornny litilForn-Ný er verslun og járnsmiðja sem býður til sölu eigin framleiðsluvörur auk mikils úrvals af gjafa og skreytingavörum. Í versluninni að Iðnbúð 1 í Garðabæ er hægt að finna margt spennandi fyrir heimilið, forstofuna eða stofuna, eldhúsið eða svefnherbergið.

Hönnunarhús með persónulega þjónustu

Design litidDesign ehf er stofnað af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum Hönnunar og Umbrots. Nýlega fluttu þeir í nýtt og glæsilegt húsnæði í Skipholti 15. Starfsemi Design er afar fjölbreytt og má segja að ekkert verk er of stórt né smátt. Starfsfólk Design leggur mikla áherslu á persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers og eins.

Viltu versla ódýrar gæðavörur?

Servida litilServida var stofnað árið 2002 og hefur frá upphafi boðið umhverfisvæna framleiðslu varðandi hreinlætisvörur og pappír. Nýverið flutti fyrirtækið í nýtt húsnæði og hefur opnað glæsilega og aðgengilega verslun að Hvaleyrarbraut 4 – 6, þar sem bæði einstaklingar og fyrirtæki geta verslað gæðavöru á lægra verði en hingað til hefur verið í boði.

Mjúk og merkileg í nær 50 ár

Verið í Glæsibæ hefur framleitt sængurfatnað fyrir viðskiptavini frá árinu 1960. Upphaflega voru konur við þann starfa að bródera vöggusett fyrir nýfæddu börnin. Þetta er enn þann dag í dag hluti af því sem Verið býður upp á.

Sláðu betur í sumar

Slattuvelar smallAllir þeir sem eiga garð ættu að þekkja það að grasið þarf að slá nokkrum sinnum á hverju sumri. Verkið getur reynst mörgum mikill höfuðverkur, enda hvorki alltaf auðvelt né fljótlegt að slá blettinn ef vélin er ekki í góðu standi.

Bláa lónið - Falinn Sælureitur

Það er eiginlega alveg sama hver á í hlut, ef viðkomandi stoppar á Íslandi lengur en í sólarhring gerir hann sér ferð í Bláa Lónið. Það eru ýmsir fastir liðir í íslenska ferðamannaiðnaðinum sem virðast jafnvel klisjukenndir á tímum, en Bláa Lóninu tekst alltaf að endurnýja sig og er fyrir löngu orðið að föstu stoppi líkt og Gullfoss og Geysir.

Frönsk hönnun við íslenskar aðstæður

StanislavStanislas Bohic ætti að vera flestum landsmönnum góðkunnur, en hann hefur um árabil veitt ráðgjöf í garðhönnun, meðal annars með greinaskrifum sínum og ráðgjafaþjónustu í verslunum Húsasmiðjunnar.

Varmadælur: Hagkvæmur kostur til upphitunar sumarhúsa

Kælitækni hefur um árabil selt varmadælur frá framleiðandanum Carrier sem er leiðandi í heiminum á sviði loftkælingar og varmadælna. Á sýningunni Sumar 2006 sem haldin var í apríllok í Laugardalshöllinni kynnti Kælitækni m.a. varmadælur fyrir sumarhús og var áhugi gesta sem heimsóttu bás fyrirtækisins mikill.

Sumarverkefni - Hellur og steypa

Þegar sumarið gengur í garð fara margir að huga að því að helluleggja, hvort sem um er að ræða garða, innkeyrslur eða stéttir, enda um fallegt og fjölhæft byggingarefni að ræða. Aðrir eiga þó í fullu fangi með að lappa upp á sín hellulögðu svæði, þar sem arfi, mosi og annað getur skekkt hellurnar til og gert viðhald tímafrekt og leiðinlegt til lengdar. Ef þú ert að leita að langtímalausn og vilt minnka viðhald gæti skrautsteypa því jafnvel verið hagkvæmari kostur.

Blómaker í öllum regnbogans litum

Mork smallGróðrarstöðin Mörk var stofnuð haustið 1967 af Pétri N. Ólasyni og Mörthu C. Björnsson og hefur síðan vaxið jafnt og þétt og er nú ein helsta uppeldisstöð landsins fyrir hvers konar garð-og skógarplöntur. Starfsvæði stöðvarinnar er einkar vel staðsett innst í Fossvogsdal á miðju höfuðborgarsvæðinu. Gróðrarstöðin Mörk er staðsett við Stjörnugróf 18, 108 Reykjavík.

Settu persónulegan svip á garðinn

gardheimar smallMeð hækkandi sól og hlýnandi veðri skapast æ fleiri stundir sem hægt er að verja úti í garði og njóta blíðunnar í góðum félagsskap vina og ættingja. Á sama hátt og flest okkar kappkosta við að setja persónulegan svip á heimilið okkar ættum við því að huga að því núna að taka garðinn í gegn.

Íslenskt, flott og umhverfisvænt

Víkurás ehf. hefur frá árinu 1992 verið leiðandi í framleiðslu innihurða á Íslandi. Víkurás framleiðir spónlagðar innihurðir úr flestum viðartegundum og einnig litlakkaðar og harðplastlagðar hurðir.

Við þjálfum sérfræðinga

Isoft er eini skólinn á Íslandi sem viðkenndur er af Microsoft og hefur alþjóðlega vottun sem framúrskarandi skóli við kennslu á efni frá Microsoft Certified Partner for Learning Solutions/CPLS. Þegar velja þarf nám og skóla, er mikilvægt að leita gæða og reynslu, svo námið standist kröfur markaðarins.

Hlýfðarskyggni og partýtjöld

Seglagerðin Ægir býður upp á mjög heilstæða þjónustu. Þar er rekin saumastofa, verkstæði, þjónusta við fellihýsi og tjaldvagna, tjaldaleiga og verslun og bjóða starfsmenn upp á toppþjónustu allt árið um kring. Í verslun Seglagerðarinnar, Eyjaslóð 5-7, er hægt að finna allskyns aukahluti fyrir útileguna.

Sýndu ábyrgð í sumarfríinu

Sumarið er einn helsti ferðatími landsmanna sem flykkjast í stríðum straumum í frí víða um landið. Því miður verða flest slys í umferðinni á þessum árstíma, mörg smávægileg, önnur mun alvarlegri.

Hvalaskoðun - Mikið líf í Faxaflóa

Hvalir eru stærstu dýr jarðarinnar og hafa lengi verið mönnum mikil ráðgáta, enda miklar furðuskepnur sem á merkilegan hátt hafa náð að aðlagast lífinu í undirdjúpunum. Í dag gefst fólki tækifæri til þess að skoða þessi merkilegu dýr rétt undan ströndum landsins, en reglulegar hvalaskoðunarferðir eru farnar yfir sumartímann víða um land, meðal annars frá Reykjavíkurhöfn.

Þorir Þú

Adrenalíngarðurinn á Nesjavöllum, einungis 40 km. frá Reykjavík, hóf starfsemi sína í fyrra. Garðurinn er sérstaklega hannaður til þess að láta hjartað slá hraðar og fá menn til að reyna á kjarkinn,, en Adrenalíngarðurinn býður uppá fjölbreytilega afþreyingu fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt. Lífsstílsblað Gulu línunnar skellti sér á staðinn og fékk að finna fyrir spennunni.

Gaman á Stokkseyri

Í hjarta Árnessýslu, við suðurströnd landsins, aðeins 55 kílómetrum frá Reykjavík, stendur þorpið Stokkseyri sem hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamenn. Aðveldlega má eyða heilum degi í að skoða sig um svæðið og enda síðan ferðina á góðum kvöldverði. Einstök náttúrufegurð er á þessum slóðum og fjölbreytileg afþreying fyrir alla.

Innheimta á öllum stigum

Innheimtulausnir er ungt fyrirtæki staðsett í Hlíðasmára í Kópavogi. Megin áherslur fyrirtækisins eru sveigjanleiki og skilvirkni auk persónulegrar þjónustu og trúnaðar við viðskiptavini. Upplýsingagjöf til stjórnenda er stór þáttur í starfseminni ásamt faglegri ráðgjöf.

Garðhúsgögn úr ýmsum áttum

Rumfatalagerinn smallSumarið er sá tími ársins sem er í uppáhaldi hjá hvað flestum enda fátt sem gleður meira en að geta grillað úti í góðra vina hópi eða flatmagað í sólinni á góðum sólbekk eftir annasama vinnuviku.

Draumur golfarans

Heilir 320 dagar af sólskini á ári, falleg náttúra, gamlar miðaldaborgir, golfvellir sem eru hannaðir af Nicklaus hönnunarfyrirtækinu, fallegt hús í þinni eigu. Getur þetta hljómað mikið betur. Á Murcia svæðinu á Costa Blanca er Polaris World stærsti þróunar- og byggingaraðili á fasteignum sem tengjast golfvöllum. Þetta svæði er kjörið fyrir golfleikara.

Af hverju SCARPA?

Góður skóbúnaður er gífurlega mikilvægur hluti ferðalagsins, enda geta lélegir og óþægilegir skór auðveldlega eyðilagt annars ánægjulega gönguferð. Þegar kemur að því að velja sér skó er því mikilvægt að huga að gæðum og endingu.

Þægilegur ferðamáti fyrir íslenskar aðstæður

Seglagerðin Ægir er gamalt og rótgróið fyrirtæki sem hefur staðið í rekstri í 93 ár og hefur á þeim tíma náð að skapa sér traust meðal viðskiptavina á Íslandi. Lestu áfram um fyrirtækið og það sem þeir hafa upp á að bjóða.

Les fimmtánhundruð orð á mínútu

Hraðlestrarskólinn býður upp á tvenns konar námskeið; í hraðlestri annars vegar og námstækni hins vegar. Eins og nöfnin gefa til kynna eru áherslur námskeiðanna mismunandi en tengingin er þó augljós þar sem bæði námskeiðin stuðla að öflun markvissari þekkingar á skemmri tíma. Í meðfylgjandi umfjöllun er fyrst og fremst verið að fjalla um hraðlestrarnámskeiðin.

Fólk um allan bæ er að skrappa

Hugtakið „skrapp“ eða „scrap booking“ hefur lengi verið mjög þekkt víða í Ameríku. Það er þó tiltölulega stutt síðan vörurnar og kunnáttan hafa verið aðgengilegar hérlendis.

10 góð ráð fyrir grillveisluna

Grillveislan er fyrirbæri sem margar menningar eiga sameiginlegt. Slíkir mannfögnuðir eru sérstaklega mikilvægur þáttur í samfélögum Ástrala annars vegar og Bandaríkjamanna í Suðurríkjunum hins vegar. Uppruna grillsins má rekja til frumbyggja Ameríku, en Engilsaxneska orðið ‘barbecue’ er talið koma frá tímum franskra sjóræningja í Karíbahafinu.

Skammdegið skorað á hólm - Gleðilitir á hvert borð

color glugginn

Fyrir ekki svo löngu síðan var eitt best geymda leyndarmál Reykjavíkur litrík og spennandi verslun í Fákafeni.

Er barnið þitt vel nestað

logo islenskt.is

Nú er skólaárið byrjað og börnin streyma með flottu skólatöskurnar sínar í skólann. Í töskunum er að sjálfsögðu hollt og gott nesti sem foreldrarnir eru búnir að útbúa fyrir börnin.

 

Láttu þér líða vel

Toscana var stofnuð árið 1979 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi og er því með langa reynslu í að þjóna viðskiptavinum sínum. Toscana er húsgagnaverslun með breiða línu af húsgögnum, hvort heldur er: svefnherbergi, stofa, eldhús eða skrifstofan.

S-kortið sparar tugi þúsunda

Strætó bs sér um almenningsamgöngur á öllu höfuðborgarsvæðinu. Þ.e. Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og Álftanesi. Markmið fyrirtækisins er að efla almenningssamgöngur, bæta þjónustu við neytendur og auka hagkvæmni. Unnið er samkvæmt einu, samræmdu leiðakerfi og einni gjaldskrá.

Rými - Pergo parket

Parketgólf eru gríðarlega vinsæl hér á landi, en því miður finnst mörgum kaupendum þess eins og þeir þurfi sífellt að vera á varðbergi gagnvart skemmdum.

 

Propack.is - Listin að flytja

Það getur fylgt því mikill hausverkur að flytjast búferlum. Það er að mörgu að huga, margt að skipuleggja og oft standast tímasetningar ekki þegar á hólminn er komið. Propack, eða Pökkun og flutningar ehf., er með sérþekkingu á þessu sviði og getur greitt fyrir öllu því helsta sem þarf að vera í lagi þegar þú ert að flytja á milli landa.

Garðhúsgögn úr ýmsum áttum

Sumarið er sá tími ársins sem er í uppáhaldi hjá hvað flestum enda fátt sem gleður meira en að geta grillað úti í góðra vina hópi eða flatmagað í sólinni á góðum sólbekk eftir annasama vinnuviku.



Netspjall