Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Kældu þig niður!

Kælitækni1Þeir sem vinna með matvæli, allt frá framleiðslu til framsetningar vita að góðir kælar tryggja ferskleika og lengja endingartíma vörunnar.  Kælitækni þjónustar alla þá sem þurfa á kælingu eða frystingu að halda; sjávarútveg, hráefnisvinnslur, veitingastaði, mötuneyti og verslanir.

Fermingar - Fyrsti þáttur

FermingarÍ byrjun hvers árs fara margir af stað í leit að veislusal og komast að því, sér til mikillar skelfingar, að flestir betri salir bæjarins eru bókaðir allt að 3-4 ár fram í tímann. Hins vegar þá er þetta sami tími sem flestir salir leita að staðfestingum á bókunum og því gerist það oft í janúar og febrúar að sumir salir losna.

3 staðir til að þvo bílinn

thvottur tjaraÁ síðustu dögum hafa raðir í bílaþvottastöðvar landsins verið lengri en fólk á að venjast. Því er um að kenna salti og aur á götum auk þess sem blessuð sólin er lágt á lofti og sýnir óhreinindin í enn betra ljósi en ella.  Það er þó oftar en ekki leiðinlegt að bíða í röð í rúman klukkutíma og þess vegna langar okkur að kynna til sögunnar þrjá staði til þess að þvo bílinn á.

 

Ný verslun hjá Wurth

Wurth logoWurth á Íslandi hefur opnað nýja og glæsilega verslun að Skemmuvegi 6 í Kópavogi. Þessi verslun er sú fjórða sem Wurth opnar á Íslandi.

Vekjaraklukka sem vekur

Puzzle alarmFyrir þig og þig og þá sem þurfa alltaf 5 mínútur í viðbót er komið á markað í Japan verðugt verkefni sem hægt er að fást við á morgnanna. Á hverjum einasta morgni þarftu að setja þig í hlutverk Jack Bauers því vekjaraklukkan er í formi sprengju og þú þarft að aftengja rétta vírin. Eftir svoleiðis æfingar ertu örugglega meira vakandi en sofandi.

Sagan af Heilögum Valentínusi.

ValentinusardagurÞað er mjög útbreiddur misskilningur að Valentínusardagurinn sé bandarískur siður. Þeir hafa hins vegar verið nokkuð duglegir að tileinka sér hann. Dagur elskenda er ævaforn rómverskur siður sem hefur farið víða um hinn kristna heim.

SJ innréttingar - innrétting á 10 dögum

sj innrettingarSJ innréttingar er fyrirtæki sem sérhæfir sig í innréttingum fyrir allt heimilið á lágmarksverði. Öll þurfum við einhvern tíman að endurnýja innréttingarnar á heimili okkar. Flest okkar hafa nóg að gera dagsdaglega svo ekki gefst alltaf mikill tími til að setja upp innréttingar sjálf. Enda vandasamt verk svo oftar en ekki er ákveðinn sparnaður að fá fagfólk til verksins.



Netspjall