Það þarf ekki allt að kosta og 500 krónu seðillinn getur komið fjölskyldunni, krökkunum, parinu, eða þér sjálfum skemmtilega á óvart. Á umræðusvæði Gulu línunar skapast oft skemmtilegar samræður og við tókum saman helstu hugmyndir sem fram komu um hversu langt 500 krónu seðillinn nægði til þess að hafa ofan af fyrir þér og öðrum.
Sund er góð skemmtun og þar þarf ekki endilega að hafa með sér sundgleraugu og sundhettu í 2 kílómetra sundsprett þó það sé gott og gilt heldur er hægt að eyða heilum degi í laugunm. Heitir pottar, gufuböð, rennibrautir og lyftingartæki er sumt af því sem flestar sundlaugar Reykjavíkur bjóða uppá. Allar hafa þær opið um helgar og fram á kvöld á virkum dögum.
Fullorðnir: 360 krónur, Börn: 110 krónur.
Strætó er ekki bara góður til þess að fara frá A til B heldur eru sumar leiðir sem koma í staðinn fyrir bestu útsýnistúra sem boðið er uppá á sumrin. Leið S1 er tilvalinn til þess að taka túristan frá Bandaríkjunum með á. Leiðin keyrir í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog og endar svo túrinn með ferðamannaundrum eins og Perlunni, Hallgrímskirkju, Tjörnin og miðbær Reykjavíkur. Líklega verður ykkur hent út á Hlemm því þar endar fjörið og þá er ekki verra að labba niður Laugaveginn og sjá það sem þar er.
Fullorðnir: 280 krónur, Börn: (6-18 ára) 100 krónur.
Við búum við þau ótrúlegu þægindi að geta setið yfir kaffibolla og lesið það sem okkur listir til. Kaffihúsin Súfistinn í Iðu og Te og kaffi í Eymundsson í Austurstræti bjóða bæði upp á ótakmarkað magn af tímaritum, bókum, fræðiritum og ljóðum fyrir verð eins kaffibolla. Sestu niður með nýja skáldsögu eða fréttir af fræga fólkinu og eyddu eftirmiðdeginu yfir kaffibolla. Frí áfylling. Það kæmi okkur heldur ekki á óvart ef það væri pláss fyrir súkkulaði mola eða tvo með þessum 500 króna seðli.
300 krónur
Í nýbyggingunum í Grafarholti er lítið svæði sem er alltaf upplýst og erfitt að láta fram hjá sér fara. Þarna eru golfáhugamenn og atvinnumenn þessa lands að leggja grunn að næsta golf sumari. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og 500 krónurnar koma þér og þínum vel að gagni. 50 golfboltar í Básum kosta 450 krónur. Í kuldanum er örugglega hægt að biðja um kaffi í afgreiðslunni. En boltunum er ekki hent út á grasið heldur þarf kylfu til þess að njóta þessara dægrastyttingar. Óskrifuð regla er þó að fólki sé illa við að lána kylfurnar en við teljum miklar líkur á að það sé hægt að pikka kurteisislega í öxlina á nágrannanum og fá 7 járnið lánað í smá tíma.
450 krónur
Ef að hreyfing er ekki fyrir þig og þú hefur engan áhuga á að láta sjá þig í strætó þá er þó ekki öll von úti með 500 krónurnar. Á næstu vikum munu Sambíóin bjóða upp á allar myndir á þriðjudögum á 500 krónur
500 krónur
Í brekkum Breiðholts er skíðalyfta sem tekur notendur upp á topp þar sem er svo gott tækifæri til þess að renna sér niður aftur. Þetta er hægt að gera á skíðum eða snjóbretti en skemmtilegast er að láta sig flakka niður brekkurnar á svokallaðri rassaþotu. Brekkan og lyftuferðin er frí en hægt er að kaupa handhægar þotur í betri búðum bæjarins. Til dæmis Intersport. Eina vandamálið sem eftir situr er þá að framkvæma lyftuferðina upp brekkuna á svona þotu. Það verður að vera gangandi eða halda góðu jafnvægi á leiðinni upp.
500- krónur
Gönguferð um bæi og borg, meðfram sjónum eða út á höfn. Sama hvert er gengið þá er hægt að leggja leiðina fram hjá hinum ótalmörgu stofnunum og félögum sem alltaf vantar fé til þess að gera gott. Farðu í langan göngutúr eða stuttan og afhentu 500 krónurnar í söfnunarbauk eða móttöku félags sem þú hefur áhuga á að hjálpa.
500 krónur
Endilega skrifið niður ykkar leiðir til þess að eyða deginum fyrir minna en 500 krónur og leggið þær inn á umræðuborðið hér til hliðar.
Kveðja, Gula línan.
