Fyrir nokkrum árum hefði fáa órað fyrir þeirri sprengingu sem hefur átt sér stað í úrvali baðinnréttinga á íslandi. Þar sem áður voru venjulegu ílöngu baðkörin eru komin hornbaðkör með nuddi og öðrum munaði sem gerir það ómótstæðilegt að láta þreytuna líða úr sér eftir langan vinnudag og ekki spillir fyrir að þau bjóðast á afar hagstæðu verði hjá Álfaborg!

Álfaborg er sérhæfð byggingavöruverslun sem leggur áherslu á heildarlausnir fyrir baðherbergi, allt frá flísum til hreinlætistækja. Álfaborg býður mikið úrval hreinlætis- og blöndunartækja, nuddbaðkara og lúxussturtuklefa auk allra áhalda fyrir baðið og fyrir þá sem eru að byggja nýtt eða endurnýja baðherbergi er margt spennandi að skoða.
Þá er Álfaborg með öll verkfæri, áhöld og efni tengd flísalögnum og eftir breytingar á vöruúrvali í mars sl. er mikil áhersla lögð á gólfefnadeild þar sem fæst parket í miklu úrvali, teppi, náttúruflísar og margt fleira og það er því óhætt að mæla með ferð í Álfaborg fyrir alla sem huga að breytingum heima fyrir.
Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðu Álfaborgar: www.alfaborg.is
_____
Álfaborg
Skútuvogi 6
104 Reykjavík
s. 568 6755
