Emar hefur sérstöðu á markaðnum að því leyti að viðskiptavinir skoða vöruúrval í bæklingum eða á netinu, fá verðtilboð og varan er síðan pöntuð frá framleiðendum eða birgjum. Þetta skilar í flestum tilfellum lægsta verði til viðskiptavina, sem hafa verið afar ánægðir með vörur og þjónustu fyrirtækisins.

Engin hefðbundin verslun hefur verið undir starfsemina og hún farið að mestu leyti fram á netinu. Þetta lækkar verðið enn frekar þar sem þessi aðferð heldur öllum kostnaði og yfirbyggingu í lágmarki.
Emar heldur úti heimasíðu á slóðinni www.emar.is og þar er hægt að finna allar upplýsingar um þær vörur og þjónustu sem er í boði. Síðan er einföld og þægileg í notkun og afar handhæg fyrir þá sem eru að leita að ákveðnu merki eða tiltekinni vöru og einnig er þar að finna greinargóðan fróðleik um ýmsar vörur; hvernig á að vinna með þær og hvaða möguleika þær bjóða upp á. Við hvetjum því alla sem eru í framkvæmdahug að skoða heimasíðu Emars og fá samkeppnishæf verðtilboð á gæðavörum.
_____
Emar byggingavörur
s. 898 5005
www.emar.is
