Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Hópferðir hvert á land sem er

Það er fátt jafn heillandi og íslensk náttúra í fallegum vetrarfeldi og nú er tími vetrarferðalaganna runninn upp. 
Það færist stöðugt í vöxt að starfsmannahópar, félagasamtök eða aðrir hópar taki sig til og fari í vetrarferðir innanlands, hvort sem um er að ræða dagsferðir eða lengri ferðir, og skoði Ísland í vetrarbúningi.

Trex2b

TREX hópferðamiðstöð er ferðaþjónusta sem byggir á gömlum og traustum grunni en starfsemi þess spannar nærri hálfa öld þótt það hafi orðið til í núverandi mynd við sameiningu Hópferðamiðstöðvarinnar og Vestfjarðaleiðar árið 2002.  Eins og nafnið gefur til kynna sérhæfir fyrirtækið sig í ferðum fyrir hópa en það hefur yfir að ráða fjölbreyttum og fjölhæfum rútuflota fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum og eru þær allar með öryggisbeltum í farþegasætum.  Fyrir stóra hópa sem þurfa fleiri en eina rútu er boðið upp á samtengda leiðsögn þar sem talað er í hljóðnema í einum bíl en heyrist í fleirum.

TREX getur séð um alla þætti ferðalagsins; bókun á gistingu, veitingar, fundaraðstöðu og ýmis konar afþreyingu enda leggur starfsfólk TREX, jafnt bílstjórar, leiðsögumenn og skrifstofufólk, áherslu á persónulega og sveigjanlega þjónustu við hvern hóp fyrir sig.

Ef hópurinn þinn er í ferðahug þá hefur TREX öll svör á reiðum höndum! 
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.trex.is

_____
TREX  hópferðir
Hesthálsi 10
110 Reykjavík
s. 587 6000



Netspjall