Byko er fyrirtæki sem flestir landsmenn kannast við. Saga þess spannar nú yfir 40 ár og á þeim tíma hefur átt sér stað mikil þróun bæði í vöruframboði og verslunarmálum.
Verslunin hóf starfsemi í 135 fermetra húsnæði við Kársnesbraut þar sem verslað var með grófa vöru en fljótlega var opnuð smávöruverslun við Nýbýlaveg, þar sem sýningarsalur Toyota er nú til húsa.

Æ síðan hefur verslunin verið að stækka við sig og er nú til húsa við Skemmuveg í Kópavogi (Breiddinni) en að auki eru starfræktar 7 aðrar verslanir undir merkjum Byko á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Byko hefur einnig fært út kvíarnar í aðrar áttir því undir rekstur Byko heyra einnig fyrirtækin Elko, Intersport og Húsgagnahöllin og að auki rekur Byko timburverksmiðju í Lettlandi.
Allt frá upphafi hafa eigendur og starfsfólk haft það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu og bjóða vandaðar vörur sem henta íslenskum aðstæðum. Með harðnandi samkeppni á markaðnum eru þessi markmið jafnvel enn mikilvægari í dag og því er kappkostað að halda í þessi gildi, hvort sem um er að ræða byggingavörur, raftæki eða annað.
Allar nánari upplýsingar um Byko má finna á heimasíðunni www.byko.is en á síðunni er einnig vefverslun þar sem hægt er að panta nánast allar vörur, hvert á land sem er.
_____
BYKO ehf
Skemmuvegi 6
200 Kópavogur
s. 515 4000
