Hvort er betra, venjulegt parket eða gegnheilt?
Báðar lausnir hafa sína kosti. Venjulegt spónlagt parket er fljótlegt að leggja, endist vel og þarf í flestum tilfellum ekki að lakka eftir lögn. Gegnheilt parket er “orginal” parket, sams konar og lagt hefur verið á allar meiriháttar byggingar í margar aldir. Úreldist aldrei, fer aldrei úr tísku. Þú getur valið úr ótal viðartegundum, yfirborðsmeðhöndlun og mynstrum.

Hvort á að nota olíu eða lakk á parket?
Hvoru tveggja er gott. Lakkað gólf þarf oftast nær ekki að hugsa um að endurlakka fyrr en eftir u.þ.b. fimm til tíu ár á íbúðarhúsnæði en mun oftar ef um er að ræða dansgólf eða gólf á verslunum og vinnustöðum. Olíuborið gólf þarf oftast nær að endurolíubera á hálfs til tveggja ára fresti. Olíuborin gólf henta illa þar sem berst inn mikil bleyta eða oft þarf að þvo.
Er gamla parketið orðið blettótt og rispað?
Ef blettirnir stafa af því að lakkið er slitið og óhreinindi hafa litað efsta borð viðarins þá hverfur það í lang flestum tilfellum við slípun. Ef hins vegar blettirnir stafa af því að vatn hefur komist undir parketið, t.d. við leka, getur þurft að skipta um þann hluta af gólfinu sem er skemmdur. Oftast er hægt að gera gólfið sem nýtt aftur.
Fylgja parketslípun óhreinindi?
Allir alvöru parketmenn nota vélar sem ryka mjög lítið. Ef hugsað er um að tæma oft rykpokann rykast lítið. Þó geta verið þær aðstæður að ekki verði komist hjá ryki t.d. slípun á stiga eða þar sem mjög þröngt er og pokarnir rekast í veggina. Við venjulegar aðstæður kemur lítið ryk.
Hve oft er hægt að slípa spónlagt parket?
Flestar gerðir af spónlögðu parketi eru með 3,5 - 4 mm. spón. Það er alltaf hægt að slípa tvisvar, stundum þrisvar.
Borgar sig að láta slípa spónlagða parketið?
Nýtt spónlagt parket kostar u.þ.b. 4000 - 6000 kr. m2. ákomið og full frá gengið. Þá á eftir að reikna kostnað við að rífa af gamla gólfið og farga því. Slípun á gamla gólfinu kostar u.þ,b. 1800 - 2300 kr. m2 með öllu. Þar að auki verður gamalt slípað gólf oft jafn fallegt og nýtt.
Eru vatnslökk jafngóð og þynnislökk?
Í flestu tilfellum eru dýrari (poly-ureþan) gerðir af leysiefnasnauðum lökkum jafn góð og þynnislökk. Þau eru oft áferðarfallegri en viðkvæmari fyrir rispum og nuddi. Slitþolið er oftast nær svipað eða jafn gott. Athugið að mikilvægt er að nota réttan hreingerningalög þegar verið er að þrífa parket.
Þessi ráðgjöf er í boði Parka ehf.

Dalvegur 18
201 Kópavogur
564 3500
Leitarorð : parket, parki , parketlögn , viðhald, parketviðhald
