Ert þú hluti af hópi á ferð?
Nú þegar landinn flykkist til fjalla má reikna með að flestir sem ferðast fyrir eigin afli séu í slagtogi með öðrum eða jafnvel hluti hóps. Á meðan allt leikur í lyndi, nóg er að bíta og brenna, veðrið gott og erfiðleikar hóflegir miðað við reynslu hvers og eins, skiptir e.t.v. ekki meginmáli hvort þú ferðast í hópi eða einn þíns liðs. Kostir þess að ferðast í hópi verða þá fyrst augljósir þegar á móti blæs því þá má finna umtalsvert öryggi í samveru með öðrum. En til að allt gangi snurðulaust fyrir sig eru hér nokkur atriði sem gott er að hafa í huga til að ferðin takist sem best.
Fararstjóri: Mikilvægt er að allir komi sér saman um einn fararstjóra sem heldur utan um ferðaáætlun og heggur á hnúta í samskiptum ef nauðsynlegt er. Ef hópurinn er vel samstilltur eru litlar líkur á að fararstjóri þurfi að hafa sig í frammi, en ef aðstæður breytast verður hann að geta tekið af skarið. Fararstjóri ræður, en góður fararstjóri er líka góður hlustandi.
Ferðaáætlun: Raunhæf ferðaáætlun er lykill að árangri. Ef markmið eru sett með hliðsjón af getu þeirra hröðustu eða vönustu í hópnum er hætt við að ánægja þeirra hægustu verði lítil. Sú vinna sem lögð er í góða ferðaáætlun skilar sér margfalt í ánægjulegri ferð enda er helsta markmið áætlunarinnar að sjá hlutina fyrir.
Skór og annar útbúnaður: Heilsan og þá sérstaklega heilsa fóta er ekkert einkamál þegar ferðast er með öðrum. Ef fótarmein gerir vart við sig er nauðsynlegt að bregðast við því strax til að komast hjá því að vandamálið vaxi og hafi áhrif á allan hópinn. Gönguskór ættu að vera þægilegir og tilgengnir, sokkar nýir eða óslitnir og hælsærisplástrar og svampur með gati (nánari skýring í ráðahorni 3. tbl. Útiveru 2006) við höndina.
Sameiginlegar byrðar: E.t.v. má hafa færri og stærri tjöld, sameinast um eldunargræjur, mat og sjúkrakassa svo nokkuð sé nefnt. Kostir þess að hafa sameiginlegan kvöldverð fyrir alla í hópnum eru ótvíræðir. Með því má fækka eldunaráhöldum auk þess sem matargerðin verður einfaldari. Að auki er það svo umtalsvert betra fyrir andann í hópnum að borða saman.
Vatn og nasl við höndina: Hver og einn ætti að reyna að stilla þarfir sínar með tilliti til þarfa hópsins. Þannig væri t.d. ráð að ákveða a.m.k. næsta nestisstopp eða hvenær hafa eigi hádegismat. Hver og einn ætti að hafa vatn á brúsa og orkuríkt nasl við höndina sem hægt er að grípa til á göngunni án þess að nauðsynlegt sé að stoppa og taka af sér bakpokann. Fylgstu með ferðafélögunum: Árangur hópsins veltur á getu einstaklinga hans. Fólk á oft erfitt með að bera vandamál sín á borð enda vill enginn tefja að ásettu ráði. Ef allir eru vakandi fyrir velferð annarra og hugsanlegum vandamálum er síður hætta á erfiðleikum. Spurðu hvernig göngufélaginn hafi það, hvort hann finni til í fótunum, sé þyrstur eða orkulaus eða bara óöruggur með framhaldið.
Í skála eða á tjaldstað: Hvort sem gist er í tjöldum eða skála þarf að taka tillit til annarra gesta. Gott er að temja sér umgengni sem hefur lítil áhrif á umhverfið. Þá er það góð regla að skilja þannig við tjaldstæði eða skála að ekki sjáist merki um veru hópsins. Neyðarútbúnaður og viðbrögð: Samstilltur hópur með sams konar markmið ætti að komast af með einföld fjarskipti svo sem NMTsíma, gervihnattasíma, eða VHFtalstöð, kort, áttavita og GPStæki. Í ferðaáætlun ætti að vera varaferðaáætlun og neyðaráætlun ef annað bregst.
Þessi ráðgjafi er í boði Útiveru útgafunnar.
Frekari upplýsingar : http://www.utivera.is
