Beint á leiðarkerfi vefsins
Gula Línan

Hvernig á að velja innréttingar?

Innréttingar og skápar á heimilið

Þegar velja á innréttingar, þarf að huga að ýmsu. Innrétting þarf að passa vel í rýmið, borðhæð þarf að vera þægileg fyrir allt heimilisfólkið, útlit vera í samræmi við annað á heimilinu og henta þeim einstaklingum sem í húsnæðinu búa.

Eldhús

Mjög mikilvægt er að hafa í huga við val á eldhússinnnréttingu að vinnurýmið sé þægilegt, bæði stærð þess og hæð vinnuborða. Nýta þarf rýmið í eldhúsinu rétt og mikilvægt er að innréttingin sé hönnuð eftir þörfum þess sem mun njóta og vinna í eldhúsinu. Eitt það nýjasta frá Invita er möguleiki á rafdrifinni hækkun vinnuborða sem undirstrikar enn betur að Invita stendur fyrir persónulegar lausnir. Mjög miklu skiptir hvernig eldhúsinnréttingum er raðað saman og skynsamlegt að fá ráðgjöf hjá þeim sem hafa sérfræðiþekkingu og lausnir, sem hentar öllum heimilum. Invita býður slíka ráðgjöf og lausnirnar eru ótrúlega fjölbreyttar. Útlit er mikilvægt og hægt er að gera sitt persónulega eldhús eftir smekk, hvort sem um er að ræða einfalda naumhyggju, skrautlegt, hefðbundið eða rómantískt

Baðherbergi

Þegar velja á innréttingu og skápa í baðherbergið, þarf fyrst að átta sig á hvaða rými er um að ræða, hvaða þörf er fyrir íbúa og hvaða stíll hentar best. Hlutir eins og skúffur á brautum,skápar með rennihurðum, hornskápar og aðrar skemmtilegarlausnir gera gæfumuninn þegar um er að ræða baðinnréttingu sem þarf að nýtast eins vel og hægt er. Borðplötuefni þarf að vanda vel til dæmis vegna raka og bleytu. Með vel útfærðum hugmyndum er hægt að uppfylla þarfir flestra, þó rýmið á baðherberginu sé ekki mikið.

Skápar og hillur í öll rými heimilisins

Hvort sem vantar fataskápa, innréttingar í þvottahús, skrifstofuskápa eða jafnvel hillur og skápa í stofuna, býður Invita frábærar lausnir sem henta öllum. Einkunnarorð Invita er persónulega eldhúsið, persónulega lausnin og lögð áhersla á þægindi, öryggi og vandað handbragð. Allar lausnir eru aðlagaðar að þörfum viðskiptavina og mikil áhersla er lögð á gæði, bæði efnis og smíði. Á öllum hreyfanlegum hlutum er 20 ára ábyrgð og segir það meira en mörg orð um gæði framleiðslunnar. Lausnir eru til fyrir hvert rými og hægt er að búa til persónulegan stíl sem hentar einstaklingum og þörfum hans.


Þessi ráðgjafi er í boði Invita - Búðu til heildarmynd á heimilið með aðstoð sérfræðinga á sviði innréttinga

_____
Eldaskálinn
Ármúla 15
108 Reykjavík
s. 562 1420

Leitarorð: eldhús , eldhúsinnréttingar , rennihurðir, hornskápar, borðplötuefni , borðplötur , fataskápar, þvottahús, skrifstofuhúsgögn, hillur, baðinnréttingar, speglar, vinnuborð



Netspjall